27.07.26 - 19:42
Brynjar Ingi Erluson
Dortmund sækir grískan landsliðsmann

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýska félagið Borussia Dortmund er að landa gríska ungstirninu Kostas Karetsas frá belgíska félaginu Genk. Fabrizio Romano segir „Here we go!“ og því félagaskiptin svo gott sem frágengin.
Karetsas er 18 ára gamall sóknarsinnaður leikmaður sem á að fylla skarðið sem Karim Adeyemi skildi eftir sig þegar hann gekk til liðs við Barcelona.
Dortmund hefur reynt að fá Karetsas undanfarna vikur. Hann var einnig með tilboð frá tveimur öðrum félögum en ákvað að taka tilboði þýska stórliðsins.
Þrátt fyrir ungan aldur á Karetsas þegar að baki tíu A-landsleiki fyrir Grikkland og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Hann er talinn einn efnilegasti leikmaður þjóðarinnar.
Dortmund greiðir Genk 33 milljónir evra fyrir Karetsas sem skrifar undir langtímasamning á næstu dögum. Belgíska félagið setti jafnframt endursöluklásúlu í samninginn.
Karetsas lagði upp 18 mörk og skoraði þrjú til viðbótar fyrir Genk í öllum keppnum á síðasta tímabili.
Hann er fæddur og uppalinn í Belgíu og lék með yngri landsliðum þjóðarinnar. Karetsas valdi hins vegar að spila fyrir gríska A-landsliðið á síðasta ári vegna grísks uppruna foreldra sinna.