Fotbolti.net
27.07.26 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

Stones að gera tveggja ára samning við Inter

John Stones

John Stones

Canon

Mynd: EPA

Enski miðvörðurinn John Stones er að færast nær því að ganga í raðir Ítalíumeistara Inter.
Stones er 32 ára gamall miðvörður sem yfirgaf Manchester City þegar samningur hans rann út um síðustu mánaðamót.

Hann hefur verið orðaður við fjölmörg félög í ensku úrvalsdeildinni og að undanförnu einnig ítölsku stórliðin Juventus og Inter.

Samkvæmt Fabrizio Romano verður Inter fyrir valinu. Stones hefur náð munnlegu samkomulagi við félagið og mun skrifa undir tveggja ára samning.

Stones var lengi lykilmaður undir stjórn Pep Guardiola hjá Manchester City en þeir komu báðir til félagsins sumarið 2016. Áður hafði varnarmaðurinn leikið með Everton og Barnsley.

Hann á að baki 94 A-landsleiki fyrir England og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Stones lék fimm af átta leikjum Englendinga á heimsmeistaramótinu í sumar, þar á meðal í átta liða úrslitum og undanúrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.