27.07.26 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson
Sunderland að fá franskan U21-landsliðsmann

Methalie í leik með U21 árs landsliði Frakklands

Mynd: EPA

Sunderland hefur gengið frá samkomulagi við Toulouse um franska vinstri bakvörðinn Dayann Methalie.
Fabrice Hawkins hjá RMC Sport segir Sunderland greiða Toulouse um 25 milljónir punda fyrir Methalie. Um er að ræða stærstu sölu í sögu franska félagsins.
Methalie er tvítugur og þreytti frumraun sína með aðalliði Toulouse fyrir ári. Hann vann sér fljótt fast sæti í bakvarðarstöðunni, lék 28 leiki og kom að fjórum mörkum.
Hann á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Frakklands og var meðal annars í byrjunarliði U21-árs landsliðsins í þremur leikjum í undankeppni Evrópumótsins undir lok síðasta árs.
Methalie mun skrifa undir fimm ára samning við Sunderland standist hann læknisskoðun, að sögn Hawkins.