Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 27. september 2020 10:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áfall fyrir Sheffield Utd: O'Connell mögulega frá út tímabilið
Sheffied United gæti verið án Jack O'Connell út þessa leiktíð. O'Connell hafði byrjað vinstra megin í þriggja manna miðvarðakerfi í fyrstu tveimur leikjum deildarinnar en er ekki í hópnum hjá Sheffield sem mætir Leeds.

Chris Wilder, stjóri Sheffield United, staðfesti fyrir leikinn í dag að O'Connell muni fara í aðgerð á hné og verði mögulega frá út leiktíðina.

Chris Basham, Jack Robinson og Ethan Ampadu eru í vörn Sheffield United í dag.

O'Connell lék 33 leiki á síðustu leiktíð þegar Sheffield United átti frábært fyrsta tímabil í efstu deild eftir fjarveru frá úrvalsdeildinni. O'connell er 26 ára gamall enskur miðvörður.
Athugasemdir
banner
banner