Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 27. september 2021 18:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Crystal Palace og Brighton: Bissouma ekki með - Edouard byrjar
Edouard byrjar
Edouard byrjar
Mynd: EPA
Crystal Palace og Brighton mætast í loka leik sjöttu umferðar í ensku úrvalsdeildinni kl 19 í kvöld. Byrjunarliðin eru klár.

Crystal Palace tapaði 3-0 gegn Liverpool á Anfield um síðustu helgi. Patrick Vieira stjóri liðsins gerir tvær breytingar á liðinu í kvöld frá þeim leik. Milivojevic og Odsonne Edouard koma inn fyrir Cheikhou Kouyate og Christian Benteke.

Brighton vann Leicester með tveimur mörkum gegn einu um síðustu helgi. Graham Potter stjóri liðsins gerir tvær breytingar á liðinu í kvöld frá þeim leik. Dan Burn og Pascal Gross koma inn en Solomon March og Yves Bissouma sem er tæpur detta út úr liðinu.

Brighton er algjört spútník lið mótsins til þessa en liðið getur tillt sér á toppinn með sigri í kvöld. Palace er í 15. sæti með 5 stig.

Crystal Palace: Guaita, Ward, Andersen, Guehi, Mitchell, Gallagher, Milivojevic, McArthur, Ayew, Edouard, Zaha

Brighton: Sanchez, Veltman, Duffy, Dunk, Burn, Cucurella, Gross, Lallana, Welbeck, Trossard, Maupay
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner