27.10.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon
Stefnt á að Dybala verði klár í að byrja gegn Man Utd

Dybala er að glíma við meiðsli.

Mynd: EPA

Dybala er að glíma við meiðsli.

Mynd: EPA
Þrír leikir eru í ítölsku A-deildinni í kvöld. Roma fær Cagliari í heimsókn. Roma er í 3. sæti með 18 stig, fjórum stigum á eftir toppliðunum.
Paulo Dybala verður ekki með Roma í kvöld vegna meiðsla en hann þarf að ná fleiri æfingum áður en hann snýr aftur í hópinn.

TENGT EFNI
Ítalía í dag - Lazio á útivelli
Leikjadagskrá Roma er þétt og leikurinn í kvöld er sá sjötti síðan landsleikjaglugganum lauk.
Dybala, sem er 32 ára, hefur lagt upp fjögur mörk í sex leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili en hefur misst af síðustu þremur leikjum vegna kálfameiðsla.
Eftir heimaleikinn gegn Cagliarí kvöld, mun Roma heimsækja Udinese næstkomandi laugardag og mæta síðan Manchester United á útivelli þriðjudaginn 3. nóvember. Samkvæmt Sky vonast Roma til að Dybala verði klár gegn Udinese og nógu heill til að byrja gegn Rauðu djöflunum á Old Trafford.