Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. nóvember 2020 15:00
Elvar Geir Magnússon
Bruce óánægður með Saint-Maximin
Allan Saint-Maximin.
Allan Saint-Maximin.
Mynd: Getty Images
Daily Mail segir að Allan Saint-Maximin verði ekki með Newcastle sem heimsækir Crystal Palace í kvöld. Hann varð fyrir vöðvameiðslum á æfingu í gær.

Samkvæmt heimildum blaðsins ætlaði Steve Bruce hinsvegar að hafa þennan hæfileikaríka leikmann á varamannabekknum í kvöld.

Bruce er sagður óánægður með frammistöðu Saint-Maximin að undanförnu. Hann gerði nýjan sex ára samning við félagið í síðasta mánuði.

Newcastle getur ekki treyst á sköpunarmátt Saint-Maximin í kvöld og þá vantar þrjá leikmenn liðsins eftir að þeir greindust með Covid-19.

Newcastle er í fimmtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn gegn Crystal Palace hefst klukkan 20:00 í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner