Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. nóvember 2020 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liverpool þarf að endurtaka það sem fer illa í Klopp
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp skaut á úrvalsdeildina og sjónvarpsrétthafa í viðtali eftir tapleikinn gegn Atalanta á miðvikudag.

Hann sagði það nánast glæp að liðið þurfi að leika í hádeginu á laugardegi eftir kvöldleik á miðvikudegi.

Á miðvikudag lék Liverpool gegn Atalanta og á morgun á liðið leik í hádeginu gegn Brighton.

Í gær var tilkynnt hvernig leikjadagskráin er á næstunni og opinberað að Liverpol fer í gegnum sama álag og liðið er að gera núna um miðjan desember mánuð.

Þann 16. desember mætir liðið Tottenham í kvöldleik á miðvikudegi og þann 19. mætir liðið Crystal Palace í hádegisleik.


Athugasemdir
banner
banner