Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 27. nóvember 2022 11:00
Aksentije Milisic
Rooney: Foden er besti leikmaður Englands og hann verður að spila
Mynd: Getty Images

Wayne Rooney hefur sent Gareth Southgate, stjóra enska landsliðsins, þau skilaboð að byrja með Phil Foden inn á í lokaleik liðsins í riðlinum gegn Wales á þriðjudaginn.


Southgate var mikið gagnrýndur eftir markalausa jafntefli gegn Bandaríkjunum en Phil Foden hefur einungis spilar tæpar tuttugu mínútur á Heimsmeistaramótinu til þessa.

Rooney er ekki sá eini sem skilur ekkert í því afhverju Foden spilar ekki en Gary Neville velti því fyrir sér hvort það kom eitthvað uppá á æfingu eða utan vallar.

„Mér fannst það mjög skrítið að Foden kom ekki inná gegn Bandaríkjunum, hann væri lykilleikmaður hjá mér ef ég væri þjálfari landsliðsins," sagði Rooney.

„Ef þú horfir á liðið tæknilega séð þá er hann besti leikmaður Englands. Ef þú ert með leikmann í hans gæðaflokki þá verður þú að spila honum. Hann er öðruvísi leikmaður heldur en hann var á Evrópumótinu."

Englandi gekk illa að skapa sér færi gegn Bandaríkjunum og því var það skrítið að Foden fékk engar mínútur.

Athugasemdir
banner
banner
banner