Fotbolti.net
27.11.26 - 22:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kristján Flóki í Hauka (Staðfest)

Kristján Flóki í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Haukar

Lengjudeildin
Kristján Flóki Finnbogason er genginn til liðs við Hauka en hann skrifar undir tveggja ára samning.

Kristján Flóki kemur frá grönnunum í FH en samningur hans við félagið rann út eftir síðasta tímabil. Hann spilaði 22 leiki síðasta sumar en tókst ekki að skora.
Hann er uppalinn í FH en hefur verið á mála hjá FCK, Start og Brommapojkarna í atvinnumennskunni. Þá spilaði hann með KR frá 2019-2024.

Haukar unnu 2. deildina síðasta sumar og munu því spila í Lengjudeildinni næsta sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.