Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. febrúar 2021 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
María Soffía í KR (Staðfest) - Ásta framlengir
María Soffía
María Soffía
Mynd: KR
María Soffía Júlíusdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við KR. Hún er reynslumikill leikmaður sem fædd er árið 1995

María kemur til KR frá Víkingi og á að baki 111 leiki með meistaraflokki. Hún hefur leikið með Þrótti R., HK/Víkingi, Val og ÍR ásamt Víkingi á sínum ferli.

Þá samdi Ásta Kristinsdóttir aftur við KR og mun hún leika áfram með liðinu næstu tvö árin. Ásta er fædd árið 2002 og var lánuð til Gróttu seinni hlutann af síðustu leiktíð.

KR féll úr efstu deild í fyrra og leikur í Lengjudeildinni í sumar.


Ásta
Athugasemdir
banner