28.02.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Liverpool á heimavelli og City til Leeds

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bournemouth og Sunderland eigast við í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag, áður en Englandsmeistarar Liverpool mæta til leiks.
Meistaradeildarbaráttulið Liverpool spilar heimaleik við West Ham sem situr í fallsæti sem stendur, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Fallbarátulið Burnley tekur svo á móti spútnik liði Brentford sem er óvænt í evrópubaráttu á meðan Newcastle United og Everton mætast. Þar spilar Anthony Gordon gegn uppeldisfélaginu sínu en bæði lið eru í harðri baráttu um að blanda sér í evrópubaráttuna. Aðeins eitt stig skilur á milli þeirra á stöðutöflunni, þar sem Everton er með 37 stig eftir 27 umferðir og Newcastle með 36.
Deginum lýkur á æsispennandi slag. Nýliðar Leeds United, sem hafa verið afar öflugir á heimavelli á tímabilinu, taka þar á móti titilbaráttuliði Manchester City. Man City er á góðu skriði þessa stundina með fimm sigra í röð í öllum keppnum og markatöluna 12-3.
City er fimm stigum á eftir toppliði Arsenal og með leik til góða.
Leikir dagsins
12:30 Bournemouth - Sunderland
15:00 Liverpool - West Ham
15:00 Burnley - Brentford
15:00 Newcastle - Everton
17:30 Leeds - Man City

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 8 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 9 | Leeds | 7 | +3 | 10 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 7 | -8 | 4 |