Fotbolti.net
28.02.26 - 19:29
Brynjar Ingi Erluson

England: Man City marði sigur á Leeds og er tveimur stigum frá Arsenal

Antoine Semenyo skoraði fjórtánda deildarmark sitt á tímabilinu

Antoine Semenyo skoraði fjórtánda deildarmark sitt á tímabilinu

Canon

Mynd: EPA

Leeds 0 - 1 Manchester City
0-1 Antoine Semenyo ('45 )
Manchester City er komið tveimur stigum á eftir Arsenal í titilbaráttunni eftir að hafa marið 1-0 sigur á Leeds á Elland Road í dag.

Dominic Calvert-Lewin fékk algert dauðafæri til að koma Leeds yfir snemma leiks. Fyrirgjöfin kom frá hægri og inn á Calvert-Lewin sem var einn á auðum sjó. Í stað þess að taka leggja hann fyrir sig ákvað hann að taka skotið í fyrsta og framhjá markinu.

Leeds fékk urmul af færum til þess að komast í forystu en var refsað fyrir að nýta ekki færin.

Rayan Ait-Nouri kom boltanum inn á Antoine Semenyo sem skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiksins. Fjórtánda deildarmark Semenyo á tímabilinu sem hefur notið sín vel síðan hann kom til Man City frá Bournemouth.

Karl Darlow átti hörkuvörslu frá Marc Guehi í síðari hálfleiknum, en það fór aðeins um City-menn á lokamínútunum.

Leedsarar reyndu hvað þeir gátu til þess að troða inn jöfnunarmarki en það bar ekki árangur.

Man City hélt út og er nú komið aðeins tveimur stigum á eftir Arsenal í titilbaráttunni á meðan Leeds er í 15. sæti með 31 stig, sex stigum fyrir ofan fallsæti.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Newcastle8-211
8Aston Villa8-311
9Leeds7+310
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.