Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 21:41
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Deildin hefur aldrei verið betri
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Man City, sagði eftir 1-0 sigurinn á Leeds að deildin hafi aldrei verið betri.

Man City vann baráttusigur á Leeds og er nú tveimur stigum frá Arsenal.

„Við áttum þúsund milljónir sendinga og stjórnuðum öllum leikskiptum og síðan sköpuðum við aðeins meira á síðustu tuttugu mínútunum. Það er stór sigur að vera enn á þessum stað.“

„Öll liðin eru svona en Bernardo og Rodri gerðu mjög vel. Enn og aftur fengum við stórkostlegt framlag frá öllum öðruvísi væri þetta ekki hægt,“
sagði Guardiola.

Antoine Semenyo og Marc Guehi komu til félagsins í janúar og hafa komið sterkir inn.

„Maður veit aldrei, þetta er eins og með Marc. Það er svo margt sem hefur fallið með okkur.“

Erling Braut Haaland er að glíma við meiðsli en hann veit ekki hvenær hann snýr aftur.

„Ég væri til í að fá hann aftur en ég veit ekki hvenær það gerist.“

Man City er í harðri titilbaráttu en Guardiola tekur bara einn leik í einu.

„Við tökum einn leik í einu. Við náum endurheimt, það eru margir leikir og menn eru þreyttir. Allir leikir eru ótrúlega erfiðir. Í gær tókst Wolves að vinna og enska úrvalsdeildin hefur aldrei verið betri. Aðalmarkmið félagsins er að komast í Meistaradeildina því við höfum verið þar síðustu tíu ár.“

„Ég veit það ekki. Viltu að ég segi við sjálfan mig hvað mun gerast gegn Nottingham Forest? Ég veit það ekki. Takk fyrir að leyfa okkur að spila í enska bikarnum klukkan 20:00 á laugardag og ferðast svo til Real Madrid (á miðvikudag klukkan 20:00 GMT),“
sagði Guardiola.
Athugasemdir
banner
banner