Fotbolti.net
28.02.26 - 13:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hákon Rafn í markinu?

Hákon Rafn Valdimarsson.

Hákon Rafn Valdimarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram kom í þættinum Hjammi.net í dag að Hákon Rafn Valdimarsson verði í markinu hjá Brentford gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni þennan laugardaginn.

Andri Már Eggertsson, best þekktur sem Nablinn, greindi frá þessu í þættinum.
„Þetta eru brjótandi tíðindi. Þetta er hvergi á netmiðlinum, ekki á X eða þannig," sagði Andri.

„Hákon Rafn er að fara að byrja í markinu."

Hákon Rafn hefur verið varamarkvörður Brentford frá því hann gekk í raðir félagsins frá Elfsborg í janúar 2024.

Caoimhin Kelleher er aðalmarkvörður Brentford og hefur byrjað alla leiki tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni til þessa.

Hjálmar Örn Jóhannsson stýrir þættinum Hjammi.net þar sem hitað er upp fyrir leiki ensku úrvalsdeildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.