Það var markaflóð í leikjum dagsins í A-deild Lengjubikars karla. Fram, KR og Stjarnan unnu sína leiki.
Stjarnan tryggði sér sæti í undanúrslitum og KR er líka komið langleiðina í undanúrslitin.
Stjarnan tryggði sér sæti í undanúrslitum og KR er líka komið langleiðina í undanúrslitin.
Stjarnan er með fullt hús stiga eftir fjóra leiki þar sem þeir fóru illa með HK, 6-1. Haukur Örn Brink fór á kostum í leiknum og skoraði þrennu.
KR vann mjög sannfærandi sigur á Njarðvík og er með tíu stig eftir fimm leiki. Njarðvík hefði getað tryggt sér sigur í riðlinum með sigri í dag en þeir voru frekar langt frá því.
Þá vann Fram endurkomusigur á Vestra í sama riðli. Vestri komst í 1-2 en leikurinn endaði með 5-2 sigri Framara.
Fram 5 - 2 Vestri
1-0 Magnús Þórðarson ('6)
1-1 Imran Mehanovic ('9)
1-2 Johannes Selvén ('43)
2-2 Þengill Orrason ('65)
3-2 Kennie Chopart ('69)
4-2 Kristófer Konráðsson ('73)
5-2 Róbert Hauksson ('90)
KR 5 - 1 Njarðvík
1-0 Sigurður Breki Kárason ('21)
1-1 Arnar Helgi Magnússon ('35)
2-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('42)
3-1 Amin Cosic ('62)
4-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('68)
5-1 Alexander Rafn Pálmason ('83)
Stjarnan 6 - 1 HK
0-1 Þorsteinn Aron Antonsson ('19)
1-1 Haukur Örn Brink ('31)
2-1 Örvar Eggertsson ('49)
3-1 Haukur Örn Brink ('56)
4-1 Haukur Örn Brink ('61)
5-1 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('81)
6-1 Bjarki Hauksson ('88)
Rautt spjald: Aron Kristófer Lárusson, HK ('72)
Athugasemdir



