Hollenski stjórinn Arne Slot segir að föstu leikatriðin hafi loksins fallið með þeim er liðið vann 5-2 sigur á West Ham á Anfield í dag.
Hann segir að Liverpool hafi verið óheppið á tímabilinu og ekki getað nýtt hornspyrnur og aukaspyrnur nægilega vel, eða heppnin hafi einfaldlega ekki verið með þeim.
Þrjú af fimm mörkum Liverpool komu eftir föst leikatriði og er Slot ánægður með framlagið, þó hann hafi ekki endilega verið sammála því að liðið hafi átt að fara með þriggja marka forystu inn í hálfleikinn.
„Aðalatriðið sem við tökum úr þessu er að við gerðum þrjú mörk eftir föst leikatriði. Það má kannski deila um fjórða markið sem Cody skorar stuttu eftir eitt slíkt. Þetta getur skipt sköpum í leikjum, en mér fannst 3-0 alls ekki sanngjarnt miðað við gang leiksins.“
„Oft og mörgum sinnum hefur verið verið hinum megin við borðið þar sem við áttum miklu meira skilið og þar sem við fáum á okkur mark úr föstu leikatriði. Mér fannst við alls ekki verðskulda að vera 3-0 yfir í hálfleik ef við tölum um leikinn sjálfan.“
„Í öllum öðrum leikjum sem við höfum spilað höfum við fengið mörg föst leikatriði og lengi vel verið í vandræðum með að skora úr þeim. Við fengum færin og vissum að allt yrði eðlilegt á ný. Þess vegna er þetta að gerast núna. Við erum enn að skapa færi en núna eru þau að detta inn. Allt í einu virðast hlutirnir miklu betri.“
„Ef við tölum um opna spilið þá fannst mér þetta ekki vera besti leikmaður tímabilsins, en föstu leikatriðin geta skipt ótrúlega miklu máli,“ sagði Slot.
Athugasemdir




