Fotbolti.net
28.03.20 - 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Neville er með fimm skrefa plan til að bjarga leiktíðinni

Neville er með fimm skrefa plan til að bjarga leiktíðinni
Canon

Mynd: Getty Images

Gary Neveille er goðsögn hjá Manchester United og virtur sparkspekingur hjá Sky Sports. Vegna kórónaveirunnar hefur ekki verið leikið á Englandi síðan 9. mars.

Óvíst er hvenær hægt verður að hefja keppni að nýju en níu umferðir, auk tveggja leikja sem frestað var, eru eftir til að klára 38 umferðir.
Í færslu sinni á Twitter leggur Neville til að: 1. Tímabilið skuli klárast á skömmum tíma þegar öruggt er að hefja leik aftur. 2. Næsta tímabil verði leikið þéttar.

3. Opna eigi félagaskiptagluggann frá maí á þessu ári og halda honum opnum út næsta tímabil til að auka svigrúm félaganna. 4. Framlengja samninga við þá leikmenn sem eru að renna út í sumar þannig að þeir klári yfirstandandi leiktíð og að lokum leggur hann til 5. Að veita liðum sem þurfa á fjárhagsaðstoð fjármagn, að meðtöldum utandadeildarfélögum.

Eins og staðan er í dag verður ekki leikið í úrvalsdeildinni fyrr en í fyrsta lagi 30. apríl.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.