28.08.26 - 19:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark í mögnuðum sigri

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Hertha Berlin í mögnuðum sigri á Braunschweig. Jón Dagur gekk til liðs við Hertha sumarið 2024 en hann var á láni hjá Brann fyrr á þessu ári.
Hertha lenti 2-0 undir en Jón Dagur Þorsteinsson minnkaði muninn fyrir Hertha undir lok fyrri hálfleiks. Þeim tókst síðan að jafna metin í uppbótatíma fyrri hálfleiksins.

Hertha skoraði síðan þrjú mörk í seinni hálfleik á móti einu marki frá Braunschweig og vann að lokum 5-3 sigur. Hertha er á toppnum með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens þegar liðið tapaði 3-2 gegn Viborg í dönsku deildinni. Valgeir Lunddal Friðriksson gekk til liðs við Viborg fyrr í þessum mánuði en hann var ekki í hópnum.
Bjarni Aðalsteinsson var í byrjunarliði Roskilde sem gerði 2-2 jafntefli gegn Nykoping í dönsku C-deildinni eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Roskilde er með sjö stig í 4. sæti eftir fimm umferðir.