28.08.26 - 12:25
Elvar Geir Magnússon
Sambandsdeildin: Íslendingaslagur í Bergen - Tómas Bent gegn Salah

Brann sló út PAOK frá Grikklandi í umspilinu.

Mynd: EPA

Mikael Anderson í baráttunni.

Mynd: EPA

Kristian Hlynsson er hjá Twente.

Í morgun var dregið í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar en fullt af Íslendingum eru með í keppninni. Ljóst er hvaða sex andstæðingum hvert lið mun mæta.
Kristall Máni Ingason, Eggert Aron Guðmundsson, Kjartan Már Kjartansson og Sævar Atli Magnússon eru allir hjá Brann sem mun mæta Braga, Gent, Red Imps, Sint-Truidense, AGF og Kauno Zalgiris.
Leikur Brann gegn AGF verður í Bergen. Mikael Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru á mála hjá AGF en danska liðið mun einnig mæta Braga, Gent, Twente, Inter og Escaldes og Egnatia í deildarkeppninni.
Kristian Hlynsson er hjá Twente en auk þess að mæta Íslendingunum í AGF þá mun hollenska liðið etja kappi við Freiburg, PAFOS, Red Imps, Kairat Almaty og Thun.

Íslandsmeistarar Víkings komust því miður ekki í deildarkeppnina en þeir töpuðu gegn Borac Banja Luka frá Bosníu. Borac mun leika gegn Atalanta, Panathinaikos, Kups, Hearts, Riga og Mjällby.
Sverrir Ingi Ingason er hjá Panathinaikos en hann sleit krossband í sumar. Gríska liðið mun auk Borac leika gegn Brighton, Freiburg, Kairat Almaty, CSKA Sofia og Nordsjælland.
Tómas Bent Magnússon byrjar deildarkeppnina í banni eftir að hafa fengið rautt með Hearts í umspinu. Auk Borac mun Hearts leika gegn Mónakó, PAFOS, Mo Salah og félögum í Trabzonspor, Nordsjælland og Thun.
Íslendingaliðið FC Kaupmannahöfn var í efsta styrkleikaflokki í drættinum. Viktor Bjarki Daðason, Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen eru hjá FCK sem mun mæta Braga, Rauðu Stjörnunni, Lugano, Craiova, Inter Escaldes og Iberia Tblisi.
Elías Rafn Ólafsson landsliðsmarkvörður ver mark Midtjylland sem mun leika gegn Ajax, PAFOS, Red Imps, Sint-Truidense, Hajduk Split og Egnatia.
Brighton er fulltrúi Englands í Sambandsdeildinni og mun leika gegn Mónakó, Panathinaikos, Getafe, Craiova, Jablonec og Kauno Zalgiris.
Hér er drátturinn í heild sinni