Fotbolti.net
28.08.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Palacios spilar gegn Man Utd - „Mögnuð kaup“

Exequiel Palacios í leik með Argentínu.

Exequiel Palacios í leik með Argentínu.

Canon

Mynd: EPA

Exequiel Palacios mun spila með Ipswich gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn en hann kemur til félagsins frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

Palacios er 27 ára og var kynntur hjá nýliðunum í gær. Hann er hluti af liði Bayer Leverkusen sem vann bæði þýsku deildina og bikarinn árið 2024. Hann varð heimsmeistari með Argentínu árið 2022 og var einnig í landsliðshópnum sem vann silfur á heimsmeistaramótinu í sumar.

„Þetta eru mögnuð kaup fyrir félagið," segir Gary O'Neil, stjóri Ipswich.

„Já ég er nokkuð viss um að þið fáið að sjá hann spila á sunnudaginn. Hann er hæfileikaríkur leikmaður sem hefur náð miklum árangri undanfarin ár, bæði með landi og liði."
Argentínskur landsliðsmaður í Ipswich (Staðfest) - „Traktorsstrákarnir eru komnir með nýja vél“
TENGT EFNI

Argentínskur landsliðsmaður í Ipswich (Staðfest) - „Traktorsstrákarnir eru komnir með nýja vél“

„Það að fá hann er afrakstur mikillar vinnu sem var lögð í að laða fólk að því verkefni sem við erum í og erum að reyna að byggja upp. Maður finnur að trúin á verkefnið er stöðugt að vaxa."
Palacios spilar gegn Man Utd - „Mögnuð kaup“
Canon

Mynd: Ipswich Town

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.