28.08.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Maðurinn sem Liverpool þarf að stöðva

Morgan Gibbs-White verður með á Anfield.

Mynd: EPA

Liam Delap kom frá Chelsea.

Mynd: Nottingham Forest

Morgan Gibbs-White verður með á Anfield.

Mynd: EPA
Liverpool mætir Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni á morgun en Liverpool á ekki góðar minningar frá þessari viðureign á Anfield á síðasta tímabili.
Morgan Gibbs-White átti þá frábæran leik og skoraði eitt af mörkum Forest í 3-0 sigri. Ljóst er að Liverpool þarf að hafa hemil á honum á morgun.
Morgan Gibbs-White átti þá frábæran leik og skoraði eitt af mörkum Forest í 3-0 sigri. Ljóst er að Liverpool þarf að hafa hemil á honum á morgun.

TENGT EFNI
England um helgina - Man Utd mætir aftur nýliðum
Gibbs-White varð fyrir smávægilegum hnémeiðslum um síðustu helgi og var hvíldur í deildabikarnum en hann er klár í slaginn fyrir leikinn á Anfield.
„Já Morgan er klár, Ryan Yates líka. Það eru góðar fréttir. Ibrahim Sangare varð fyrir smávægilegum meiðslum á kálfa á æfingu á miðvikudag svo hann missir af leiknum á morgun," segir Oliver Glasner, stjóri Forest.
Á fréttamannafundi í morgun sagði Glasner að hann ætti von á því að Forest myndi bæta við sig eins og einum leikmanni áður en glugganum verður lokað á þriðjudaginn. Í vikunni fékk félagið Liam Delap frá Chelsea og er sóknarmaðurinn kominn með leikheimild.
Leikur Liverpool og Nottingham Forest verður klukkan 11:30 á morgun.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Brighton | 1 | +4 | 3 |
| 2 | Arsenal | 1 | +3 | 3 |
| 3 | Brentford | 1 | +3 | 3 |
| 4 | Everton | 1 | +2 | 3 |
| 5 | Hull City | 1 | +2 | 3 |
| 6 | Chelsea | 1 | +1 | 3 |
| 7 | Man City | 1 | +1 | 3 |
| 8 | Ipswich Town | 1 | +1 | 3 |
| 9 | Leeds | 1 | +1 | 3 |
| 10 | Liverpool | 1 | 0 | 1 |
| 11 | Newcastle | 1 | 0 | 1 |
| 12 | Fulham | 1 | -1 | 0 |
| 13 | Sunderland | 1 | -1 | 0 |
| 14 | Bournemouth | 1 | -1 | 0 |
| 15 | Nott. Forest | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Man Utd | 1 | -2 | 0 |
| 17 | Crystal Palace | 1 | -2 | 0 |
| 18 | Tottenham | 1 | -3 | 0 |
| 19 | Coventry | 1 | -3 | 0 |
| 20 | Aston Villa | 1 | -4 | 0 |