Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   lau 28. september 2019 16:29
Magnús Þór Jónsson
Atli Guðna: Ég tek ákvörðun um framhaldið í vetur
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Afmælisbarnið Atli Guðnason lék leik númer 300 fyrir FH í dag þegar Hafnfirðingarnir tryggðu sér Evrópusæti næsta sumar með 3-0 sigur á Grindavík.

"Við lögðum upp með það til að byrja með í sumar að ná þessu Evrópusæti, það var gaman að vinna í dag en það var gaman að eiga þessi tvö litlu atriði (afmælið og leikjafjöldann) líka, 300 leikir er mikið, ég spilaði ekki fyrsta leikinn fyrr en um tuttugu ára svo þetta er mjög skemmtilegur áfangi."

Lestu um leikinn: FH 3 -  0 Grindavík

Leikurinn í dag var í járnum allt fram á 50.mínútu þegar FH skoraði og mínútu síðar var McAusland rekinn útaf fyrir brot á Atla.

"Hann missti boltann of langt frá sér og klippti mig niður, Lennon var reyndar alveg brjálaður að ég stóð ekki upp og hjálpaði honum að ná þrennunni svo hann yrði markakóngur."

Sigurinn í dag var mikilvægur.

"Þetta var mjög mikilvægur leikur upp á framtíð félagsins svona án þess að vera segja eitthvað of mikið, við byrjuðum vel en duttum svo aðeins niður, svo tveggja mínútna kafli sem klárar leikinn og svo auto control hérna í restina."

Eftir 300 leiki, hvað hefur Atli að segja um sitt framhald í boltanum?

"Það er aldrei að vita hvað gerist, ég á eftir að taka ákvörðun svona þegar líður á veturinn en ég gef ekkert út um það núna."

Nánar er rætt við Atla í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner