Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   sun 29. mars 2026 17:48
Stefán Marteinn Ólafsson
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Daniel Osafo-Badu þjálfari Vestra
Daniel Osafo-Badu þjálfari Vestra
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Bikarmeistarar Vestra heimsóttu Íslandsmeistara Víkinga í árlega Meistari meistaranna keppninni þar sem Íslandsmeistarar síðasta árs mæta Bikarmeisturum.


Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 -  0 Vestri

„Mér fannst þetta vera verðskuldað tap" sagði Daniel Osafo-Badu þjálfari Vestra eftir tapið í dag. 

„Við vorum næst besta liðið í leiknum og næst besta liðið á töflunni svo að mínu viti var þetta sanngjarnt"

Það voru ekki margir sem bjuggust við því fyrir fram að Vestri yrði einhvern mótspyrna við hið ógnarsterka lið Víkinga en þeir áttu þó sín augnarblik í leiknum en vantaði örlítið upp á gæðin. 

„Já í stöðunni 2-0 þá var augnarblik þar sem við hefðum mögulega getað snúið þessu en ef þú horfir á allt í heild sinni þá getum við lítið kvartað" 

Þrátt fyrir tapið í dag þá er ýmislegt jákvætt sem Vestri getur tekið með sér úr þessum leik.

„Þetta voru 90 mínútur fyrir marga leikmenn sem hafa ekki fengið þær. Það er margt fyrir okkur að vinna í og við munum fara á æfingarsvæðið til þess að verða betri" 

Vestri eru örlítið á eftir í undirbúningi fyrir sumarið en undirbúningstímabilið hefur ekki alveg verið dans á rósum fyrir vestan.

„Við erum á eftir en við höfum verið að bæta okkur. Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land en það eru nokkrar vikur í tímabilið og ég er vongóður um að við verðum klárir þegar þegar það byrjar" 

Hver eru markmið Vestra fyrir sumarið?

„Það er ekkert lið sem ég vill vera næst bestur á eftir, skulum bara segja það" sagði Daniel Osafo-Badu.


Slapp
banner
banner