Sir John Chippendale Lindley Keswick, betur þekktur sem Sir Chips Keswick, mun segja upp starfi sínu sem stjórnarformaður Arsenal þegar tímabilinu lýkur.
Hinn áttræði Keswick staðfesti þessar fregnir í dag. Hann settist í stjórn Arsenal í nóvember 2005 og tók við forsetasætinu af Peter Hill-Wood í júní 2013. Hann hefur því verið stjórnarformaður félagsins síðustu sjö ár.
„Ég lét stjórn félagsins vita af þessum áformum mínum áður en heimsfaraldurinn skall á," sagði Keswick.
„Félagið er í öruggum höndum Stan og Josh (Kroenke) sem eru með góða og trausta stjórnarmenn að störfum fyrir félagið.
„Ég veit að Arsenal mun koma sterkt út úr þessu ástandi."
Sir Chips Keswick, chairman of Arsenal Holdings Limited, has retired after seven years at the helm of the club
— Arsenal (@Arsenal) May 28, 2020
Athugasemdir