Stjórn KSÍ samþykkti á fundi í gær að Haukar haldi ársþing sambandsins á Ásvöllum á næsta ári.
„Stjórn KSÍ samþykkti að ársþing KSÍ 2021 fari fram á Ásvöllum í Hafnarfirði í umsjón Hauka og gaf framkvæmdastjóra KSÍ umboð til að ganga til samninga við Hauka um framkvæmdina. Um er að ræða tilraunaverkefni sem verður endurmetið strax eftir ársþing," sagði í fundargerð frá fundinum í gær.
Starfsmenn KSÍ kíktu í heimsókn á Ásvelli á dögunum til að skoða aðstæður.
Víkingur Ólafvík hélt ársþing KSÍ á þessu ári. Ársþingið var í Vestmannaeyjum árið 2017 og Akureyri árið 2014 en samþykkt hefur verið að ársþingið árið 2023 verði á Ísafirði.
Athugasemdir