Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 12:30
Elvar Geir Magnússon
Skiptir úr Ítalíu til Ástralíu fyrir HM
Cristian Volpato.
Cristian Volpato.
Mynd: EPA
Cristian Volpato, fyrrum leikmaður ítalska U21-landsliðsins, hefur skipt lögmæti sínu til Ástralíu áður en ástralski hópurinn fyrir HM verður tilkynntur þann 1. júní.

Þessi 22 ára miðjumaður fæddist og ólst upp í Sydney í Ástralíu en fluttist til Ítalíu 2020 og fór í yngri flokka starf Roma. Hann er með tvöfalt ríkisfang.

Hann gekk í raðir Sassuolo 2023 og hefur spilað fyrir yngri landslið Ítalíu.

Þar sem hann hefur aðeins spilað yngri leiki með Ítalíu þá uppfyllir hann skilyrði til að geta skipt um lögmæti.

Volpato hafnaði því að spila fyrir Ástralíu á HM 2022 í Katar því hann sagðist vilja einbeita sér að félagsliðaferli sínum á Ítalíu og vildi ekki taka ákvörðun í fljótfærni. Hann sagðist vilja bíða eftir því að fá kallið frá ítalska A-landsliðinu en það hefur ekki komið.

Ítalíu tókst ekki að komast á HM en Ástralía verður í riðli með Bandaríkjunum, Tyrklandi og Paragvæ.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner