29.08.26 - 21:00
Sverrir Örn Einarsson
De Zerbi: Richarlison of oft sagst vilja fara
Þrír leikmenn á útleið fyrir gluggalok

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA
Richarlison, Kevin Danso og Pape Matar Sarr hafa allir óskað eftir því að fá að yfirgefa Tottenham. Þetta er haft eftir Roberto De Zerbi þjálfara Tottenham en engin leikmannana tók þátt í leiknum þegar Tottenham tapaði 2-0 gegn Newcastle fyrr í kvöld.
ESPN greinir frá því að Juventus sé á höttunum á eftir Sarr og staðfestir De Zerbi að allir þrír leikmenn fái tækifæri á að finna sér nýtt lið fyrir gluggalok.
Þegar De Zerbi var inntur eftir því að útskýra fjarveru leikmannanna í leik kvöldsins svaraði hann.
„Richarlison.ég veit það ekki. Hann hefur of oft sagt að hann vilji fara. Danso kom til mín fyrir tveimur dögum og sagðist vilja fara. Sama gildir um Pape Sarr, en hann varð fyrir smávægilegum meiðslum; hann er þó bráðum tilbúinn að æfa.“
„Ég elska þessa leikmenn og þeir eru frábærir menn. Ég á í mjög góðu sambandi við þá. En ef þeir vilja fara, þá verða þeir að koma með fjárhagslega lausn fyrir félagið; þá geta þeir farið og við finnum aðra leikmenn.“
De Zerbi hvatti stuðningsmenn til að bregðast ekki of harkalega við eftir að Spurs töpuðu fyrstu tveimur deildarleikjum sínum án þess að skora mark í fyrsta sinn síðan 1974 þrátt fyrir að hafa varið um 380 milljónum punda í átta nýja leikmenn það sem af er sumri.
„Það ríkir engin örvænting,“ sagði hann. „Ég veit hvert við stefnum og hver áætlunin er. Mér þykir leitt gagnvart stuðningsmönnunum hvernig fór. Við verðum að bæta okkur. Við þurfum að leggja hart að okkur á vellinum og finna samspilið á milli leikmannanna.“