Fotbolti.net
29.11.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ómar Snær á reynslu hjá FCK

Ómar Snær á reynslu hjá FCK
Canon

Mynd: HK

ÓMar Snær Ívarsson (2012), leikmaður HK, var á reynslu hjá FC Kaupmannahöfn í síðustu viku.

Hann æfði með U15 til U17 liðum danska félagsins og lék með U16 liðinu gegn Fylki.
Ómar lék með fjórða og þriðja flokki HK á síðasta tímabili. Hann hjálpaði 4. flokki að komast í bikarúrslit en hann skoraði 44 mörk í 22 leikjum með 4. flokki síðasta sumar.

Hann er U15 landsliðsmaður og hefur spilað þrjá landsleiki. Leikirnir voru gegn Spáni, Austurríki og Grikklandi í síðasta mánuði.

Foreldrar hans og Frans Wöhler yfirþjálfari HK fóru með honum í ferðina til Danmerkur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.