Fotbolti.net
28.11.26 - 18:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Wilson eftir tvennu gegn Man Utd: Viljum vinna bikar

Wilson eftir tvennu gegn Man Utd: Viljum vinna bikar
Canon

Mynd: EPA

Callum Wilson skoraði tvennu þegar Brentford vann 4-0 sigur á Man Utd í dag. Hann segir að félagið sé með skýr markmið.

Brentford hefur verið um miðja deild síðustu ár en liðið situr í 5. sæti, stigi á eftir Liverpool sem er í 4. sæti, eftir 12 umferðir.
„Þetta er minna félag sem gerir allt eftir bestu getu. Allir innan félagsins finna að þeir eiga heima á þessu stigi. Næsta skref félagsins er að vinna bikar eða komast í Evrópukeppni," sagði Wilson.

Wilson hefur fengið tækifæri í byrjunarliðinu í síðustu tveimur leikjum þar sem Igor Thiago tekur út leikbann. Wilson skoraði sín fyrstu deildarmörk fyrir Brentford í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.