Fotbolti.net
28.11.26 - 21:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stefán Teitur og félagar á skriði - Svekkjandi tap hjá Hákoni

Stefán Teitur og félagar á skriði - Svekkjandi tap hjá Hákoni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur Þórðarson, fyrirliði Hannover, var á sínum stað í liðinu í 1-0 sigri á Osnabruck í næst efstu deild Þýskalands í kvöld.

Liðið hefur nælt í 10 stig úr síðustu fjórum leikjum en þar á undan náði liðið aðeins í eitt stig úr þremur leikjum og féll úr leik í bikarnum. Hannover er í 7. sæti með 18 stig eftir 13 umferðir.
Alfons Sampsted var tekinn af velli eftir tæplega klukkutíma leik og Stefán Ingi Sigurðarson kom inn á undir lokin þegar Go Ahead Eagles tapaði 4-0 gegn toppliði PSV í hollensku deildinni. Eagles er í 9. sæti með 17 stig eftir 14 umferðir.

Hákon Arnar Haraldsson spilaði 82 mínútur þegar Lille tapaði gegn Le Mans í frönsku deildinni. Le Mans var með forystuna eftir mark í uppbótatíma fyrri hálfleiks.

Ayase Ueda jafnaði metin en Antoine Rabillard tryggði Le Mans sigurinn þegar skammt var til leiksloka. Lille er í 4. sæti með 21 stig eftir 12 umferðir en Le Mans er í 13. sætii með 14 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.