28.11.26 - 18:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fofana varð fyrir kynþáttafordómum - „Orðinn vanur þessu"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Wesley Fofana, miðvörður Chelsea, hefur eytt aðgangi sínum á samfélagsmiðlinum X eftir að hafa orðið fyrir kynþáttafordómum af hálfu stuðningsmanna Chelsea.
Fofana átti erfitt uppdráttar í 3-2 tapi Chelsea gegn Nottingham Forest. Hann fékk m.a. á sig vítaspyrnu í leiknum.

TENGT EFNI
Stuðningsmenn Chelsea bauluðu á Fofana
Þá fór hann í viðtal á franskri Youtube-rás sem Chelsea hafði ekki gefið grænt ljós á. Þar gerði hann lítið úr vítaklúðri sínu í tapi gegn Liverpool í enska deildabikarnum í síðasta mánuði.
Fofana skrifaði yfirlýsingu á Instagram þar sem hann gagnrýndi ljót skilaboð frá stuðningsmönnunum.
„Ég veit að einhverjir stuðningsmenn Chelsea munu halda áfram að senda hatursfull skilaboð, mógðanir og jafnvel kynþáttafordóma, í hreinskilni sagt er ég orðinn vanur þessu," skrifar Fofana.
„Ég ber ábyrgð á frammistöðunni minni en fólk þarf að átta sig á því að fótboltamenn eru manneskjur líka. Gagnrýni fylgir fótbolta og ég skil það. En fordómar og persónuleg árás er eitthvað allt annað. Þú mátt dæma minn fótbolta án þess að ráðast á mig sem manneskja."