30.04.15 - 13:15
Magnús Már Einarsson
Brynjar Gests: Það er líf og fjör fyrir utan 101 Reykjavík

Brynjar var valinn besti þjálfarinn í 2. deildinni í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Brynjar Þór Gestsson, þjálfari Fjarðabyggðar, segir það ekki koma sér í opna skjöldu að liðinu sé spáð 10. sæti í 1. deildinni í sumar í spá fyrirliða og þjálfara.
„Nei nei, ekki ef verið er að notast við þær staðreyndir að rétt skröpuðum í lið í vetur og vel fram eftir vori, mjög fámennt en ofsalega góðmennt, bæði fyrir sunnan og austan,\" sagði Brynjar en breytingar eru hjá Fjarðabyggð síðan liðið vann 2. deildina í fyrra.

„Það hætta einhverjir níu leikmenn þannig að endurnýjunin er mikil milli ára og menn eru að týnast inn mjög seint. En menn gætu auðvitað alveg eins spáð í bolla eins og að reyna að rýna í þessa deild. Það er klassískt og eðlilegt að spá nýliðum neðarlega enda ekki búnir að sanna eitt eða neitt ennþá.\"
Miklu meiri peningar í 1. deildini
Fjarðabyggð rúllaði yfir 2. deildina í fyrra en Brynjar áttar sig á því að keppnin verður erfiðari í ár.
„Deildin verður jöfn og við Fjarðabyggðarmenn gerum okkur grein að við erum að fara í miklu sterkari deild í ár, þar sem líkamlegt atgervi, skipulag, hraði,og gæði eru töluvert meiri. Einnig eru mikli meiri peningar í spilunum hjá mörgum liðum sem erfitt er að keppa við og ekki þekkist í neðri deildum.\"
„Markmiðið er auðvitað að vinna sem flesta leiki, if you ain´t gonna go all the way, why go at all. Þetta er bara fótbolti.\"
„Hráefnið er svo sannarlega til staðar, reyndar tveir erfðabreyttir, en nauðsynlegt er að nálgast verkefnið af auðmýkt. Við þurfum að sýnum hvor öðrum virðingu, hafa trú og treysta hvor öðrum, og sýna einlægan ásetning í að ná sem lengst, að þá eru okkur allir vegir færir. Ég hef alveg gríðarlega trú á þessum drengjum.\"
„Þarna innanborðs eru virkilega góðir knattspyrnumenn, og frábærir karakterar með stórt hjarta sem smita allt og alla með góðri stemningu, húmor og gleði. Svo hefur það bara verið regla hjá mér að þeir leikmenn sem við fáum langi að koma austur á þeim forsendum að hver og einn einasti kjaftur sé tilbúinn að fórna sér fyrir félagið og liðið inn sem utan vallar og njóti þess að taka þátt í og tileinka sér nýja hluti. Mikið ævintýri fyrir unga stráka. Það er sem sagt líf og fjör fyrir utan 101 Reykjavík (Staðfest). Það verður alltaf erfitt að spila á móti Fjarðabyggð, ég get lofað því, og mönnum hlakkar virkilega til að takast á við þessa deild.\"
Tekur 3-4 leiki að læra inn á hvorn annan
Fjarðabyggð gekk upp og ofan á undirbúningstímabilinu en liðið æfði í tvískiptum hópum.
„Það segir sig sjálft að undirbúningurinn hefur ekki verið eins og best verður á kosið. Við spilum ekki nema einhverja 10 leiki í vetur að lengjabikarnum meðtöldum og hópurinn var fámennur og lítið saman. Það hefur undanfarin ár tekið okkur fyrstu 3-4 leikina að ná að læra inn aðeins inn á hvorn annan þannig að það er alltaf ljúft fyrir þau lið sem byrja á liðum eins og okkur.\"
Tveir til þrír leikmenn á leiðinni
Fjarðabyggð mun fá liðsstyrk áður en liðið mætir Grindavík í 1. umferðinni í 1. deildinni þann 9. maí næstkomandi. „Það bætast við tveir til þrír mjög ungir leikmenn núna á næstu dögum sem gefur okkur fína breidd og mikla baráttu um byrjunarliðssæti.\"
„Þetta á klárlega eftir að vera lærdómsríkt ár og fullt af mistökum sem eiga eftir að líta dagsins ljós. Ef við gerum mistök þá áttum við okkur á þeim, viðurkennum þau, lærum af þeim, og gleymum þeim svo,\" sagði Brynjar að lokum.