30.04.15 - 09:29
Magnús Már Einarsson
Samuel Hernandez í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur fengið spænska vinstri bakvörðinn Samuel Hernandez í sínar raðir.
Sammy þekkir til í íslenska boltanum en hann spilaði með Víkingi Ólafsvík í fyrra og hitteðfyrra.
Sammy kom til Ólafsvíkur um mitt sumar 2013 og spilaði síðari hlutann með liðinu í Pepsi-deildinni.
Í fyrra spilaði hann 14 leiki í 1. deildinni áður en hann hélt aftur til Spánar þar sem hann samdi við CD Eldense í C-deildinni.
Keflavík mætir Víkingi í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar á sunnudag.