Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 30. apríl 2021 18:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sveindís mögulega alvarlega meidd - Öskraði af sársauka og var borin af velli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Kristianstad, var borin af velli eftir fjörutíu mínútna leik gegn Växjö í sænsku Damallsvenskan í kvöld.

Sveindís var á sínum stað í byrjunarliði liðsins en gat ekki haldið leik áfram.

Í grein Aftonbladet kemur fram að Sveindís hafi fest hægri fótinn, stoðfótinn, í gervigrasinu og snerist óeðlilega upp á fótinn, Sveindís var að elta boltann.

Sveindís öskraði og bergmálaði öskur hennar um Visma leikvanginn í Växjö. Hún lá eftir á vellinum í nokkrar mínútur á meðan hlúð var að henni. Hún fór svo af velli á börum með vafning um hægra hnéð.

Ljóst að meiðslin eru mögulega alvarleg og nánar verður fjallað um stöðuna á Sveindísi þegar meira kemur í ljós.
Athugasemdir
banner
banner