Fotbolti.net
30.04.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Pochettino segir sárt að sjá Tottenham þjást

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino.

Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino, fyrrum stjóri Tottenham, segir að það sé mjög leiðinlegt að sjá sitt fyrrum félag í svona miklum vandræðum en liðið er í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.

Pochettino stýrði Tottenham frá 2014 til 2019 og kom liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en hann var rekinn eftir slæma byrjun á tímabilinu á eftir.

Tottenham er nú í 18. sæti, tveimur stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
„Ég elska Tottenham, félagið er hluti af lífi mínu bæði sem þjálfari og ég hef taugar til þess persónulega. Það er mjög sárt að sjá liðið í þessari stöðu og ég veit að fólk innan félagsins og stuðningsmenn eru að þjást. Það er erfitt að sætta sig við það," segir Pochettino.

Pochettino er landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og er að búa sitt lið undir HM í sumar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.