Fotbolti.net
30.05.15 - 12:46
Eyþór Ernir Oddsson

Rio Ferdinand hættur í fótbolta (Staðfest)

Rio Ferdinand hættur í fótbolta (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Eftir glæsilegan feril hefur enski varnarmaðurinn Rio Ferdinand tilkynnt að hann sé hættur knattspyrnuiðkun.
Rio Ferdinand er 36 ára og uppalinn hjá West Ham, en þaðan lá leið hans til Leeds árið 2000.

Árið 2002 gekk hann til liðs við Manchester United þar sem hann vann samtals 19 titla á þeim tólf árum sem hann lék fyrir félagið, en hann gekk til liðs við QPR í fyrra.

QPR féll úr ensku úrvalsdeildinni og tilkynnti að Rio Ferdinand myndi vera meðal þeirra sem fengu ekki nýjan samning hjá félaginu.

„Á þessu tímabili fann ég það út að það er tímabært að leggja skóna á hilluna og fara aftur inn í hús að horfa á aðra spila,\" sagði Rio Ferdinand en þetta kemur fram á SkySports.

Rio Ferdinand fékk frí í síðustu leikjum QPR, en konan hans (Rebecca Ellison) lést þann 1. maí eftir baráttu við krabbamein.

Heimild: SkySports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.