Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
banner
   fös 30. maí 2025 10:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Caulker fékk síðast lið með atvinnuauglýsingu á samfélagsmiðli
Caulker í stúkunni í Garðabænum í gær.
Caulker í stúkunni í Garðabænum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Steven Caulker er mögulega að ganga í raðir Stjörnunnar. Hann var í Garðabænum í gær og fylgdist með sigurleiknum gegn KR í Bestu deildinni.

Caulker, sem á einn landsleik fyrir England, er fyrrum leikmaður Tottenham og Liverpool, en ferill hans hefur farið svolítið hratt niður á við síðustu ár.

Árið 2017 yfirgaf hann QPR og opnaði sig þá um andleg veikindi, spilafíkn og drykkjuvandamál. Hann var þá 25 ára og talaði opinskátt um að hann hefði hugsað um að taka eigið líf.

Eftir að hann yfirgaf QPR þá hefur hann spilað í Skotlandi, Tyrklandi og á Spáni.

Hann spilaði síðast með Keciorengucu í tyrknesku B-deildinni en það er athyglisvert að hann fékk þann samning í gegnum samfélagsmiðilinn LinkedIn. Hann setti inn auglýsingu á miðilinn og samdi við félagið í kjölfarið á því.

Það er athyglisvert að í auglýsingunni setti hann inn að hann væri helst til í að þjálfa, en væri opinn fyrir því að spila líka. Hann endaði á því að spila fullt af leikjum í Tyrklandi og nú verður fróðlegt að sjá hvort að hann muni semja við Stjörnuna.
Athugasemdir
banner
banner