Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 16:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir frá því hver benti Stjörnunni á Caulker
Caulker í stúkunni í gær.
Caulker í stúkunni í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steven Caulker gæti verið á leið í Stjörnuna í sumarglugganum en hann var viðstaddur leik liðsins gegn KR í gær. Caulker er 33 ára Englendingur sem lék á sínum tíma með Tottenham og Liverpool í ensku úrvaldeildinni. Hann lék í tyrknesku B-deildinni í vetur.

Stjarnan er ekki búin að ganga frá öllu í tengslum við möguleg félagaskipti Caulker en Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segir að von sé á niðurstöðu mjög fljótlega.

Jökull ræddi við Fótbolta.net í dag. Getur þú sagt hver það var sem benti ykkur á Caulker?

„Það var umboðsmaðurinn Bjarki Már Ólafsson, virkilega öflugur gæi. Hann heyrði í mér í fyrra með hann og ég spjallaði við hann þá, og svo aftur núna. Bjarki hefur aðstoðað Caulker. Hann er vel tengdur, virkilega öflugur og vel gefinn gæi. Ég hef aðeins unnið með honum, hann er t.d. umboðsmaður Helga Fróða," segir Jökull en Stjarnan seldi Helga Fróða Ingason til Helmond Sport í fyrra.

„Meira varðandi þessi skipti skýrist fljótlega," bætti Jökull við.
Stjarnan aðeins 26% með boltann - „Að einhverju leyti óborguð yfirvinna"
Athugasemdir