Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 17:30
Innkastið
Sjúkraþjálfarinn með hæstu hlaupatölurnar
Halldór Hermann var í yfirvinnu.
Halldór Hermann var í yfirvinnu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var stórskrítinn fyrri hálfleikur. Það voru ábyggilega yfir tíu skipti sem einhver lá í grasinu og Halldór Hermann (sjúkraþjálfari KA) var örugglega með bestu hlaupatölurnar í þessum leik," segir Haraldur Örn Haraldsson í Innkastinu þar sem fjallað var um 2-1 útisigur KA gegn Fram.

Mikið var um stopp í leiknum og til að mynda tólf mínútum bætt við fyrri hálfleikinn. Sjúkraþjálfararnir voru í yfirvinnu.

Lestu um leikinn: Fram 1 -  2 KA

„Ég fékk sent frá pirruðum Framara að KA væri leiðinlegasta lið deildarinnar, menn væru sífellt liggjandi í grasinu," segir Elvar í Innkastinu en Haraldur, sem er stuðningsmaður KA, tók upp hanskann fyrir sína menn.

„Menn voru bara meiddir. Menn voru ekkert að gera þetta til að skemmta sér. Það voru líka alveg Framarar sem voru í grasinu. Það voru alls fimm leikmenn sem fóru meiddir af velli."

Halldór Hermann Jónsson sjúkraþjálfari KA liðsins hefur líkast til aldrei verið svona mikið innan vallar síðan hann lagði skóna á hilluna en hann spilaði bæði með Fram og KA á leikmannaferlinum.

„Hann fékk að hlaupa aðeins, hann elskar að hlaupa þannig hann fékk að hlaupa sína metra. Ég hef ekki áður séð tólf mínútna uppbótartíma í fyrri hálfleik en eins og ég segi þá komumst við í gegnum það," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir leikinn.

KA fagnaði mikilvægum sigri en sigurmarkið kom úr óvæntri átt. Jóan Símun Edmundsson hefur fengið mikla gagnrýni í upphafi móts en hann var hetja Akureyrarlliðsins.

„Hann hafði byrjað þetta mót hrikalega en hann kom mér rosalega á óvart með þessari innkomu," segir Haraldur í Innkastinu.
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 6 2 1 18 - 8 +10 20
2.    Vestri 9 5 1 3 11 - 5 +6 16
3.    Breiðablik 9 5 1 3 14 - 15 -1 16
4.    Valur 9 4 3 2 20 - 12 +8 15
5.    Stjarnan 9 4 1 4 16 - 17 -1 13
6.    Fram 9 4 0 5 15 - 15 0 12
7.    ÍBV 9 3 2 4 9 - 15 -6 11
8.    KA 9 3 2 4 9 - 16 -7 11
9.    KR 9 2 4 3 26 - 22 +4 10
10.    FH 9 3 1 5 15 - 14 +1 10
11.    Afturelding 9 3 1 5 8 - 13 -5 10
12.    ÍA 9 3 0 6 12 - 21 -9 9
Athugasemdir
banner