30.07.26 - 08:28
Elvar Geir Magnússon
Rafael Victor aftur í Njarðvík (Staðfest)

Rafael Victor lék með Njarðvík 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Rafael Victor lék með Njarðvík 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Njarðvík hefur fengið til sín sóknarmanninn portúgalska Rafael Victor en hann kemur á láni frá Grindavík út tímabilið.
Hann skoraði þrjú mörk í þeim fimmtán leikjum sem hann spilaði með Grindavík í Lengjudeildinni í sumar.
Hann skoraði þrjú mörk í þeim fimmtán leikjum sem hann spilaði með Grindavík í Lengjudeildinni í sumar.
„Við þekkjum Rafael, sem er stór og stæðilegur framherji fæddur árið 1996, vel en hann spilaði með okkur við góðan orðstír árið 2023 þar sem hann gerði 18 mörk í 26 leikjum," segir í tilkynningu Njarðvíkur.
Auk Njarðvíkur og Grindavíkur hefur Rafa spilað með Þrótti Reykjavík, Hetti/Huginn og Þór Akureyri á Íslandi. Alls hefur hann skorað 66 mörk í 132 leikjum á vegum KSÍ hér á landi.
„Við bjóðum Rafa hjartanlega velkominn til Njarðvíkur á nýjan leik og hlökkum til að sjá hann í grænu treyjunni í lokasprettinum í Lengjudeildinni."
Njarðvík er í fimmta sæti Lengjudeildarinnar, síðasta umspilssætinu í deildinni.

Lengjudeild karla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 22 | +32 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 22 | +25 | 43 |
| 3 | Fylkir | 22 | +13 | 40 |
| 4 | HK | 22 | +12 | 38 |
| 5 | Njarðvík | 22 | +9 | 38 |
| 6 | Leiknir R. | 22 | +1 | 28 |
| 7 | ÍR | 22 | -6 | 28 |
| 8 | Grótta | 22 | -7 | 27 |
| 9 | Vestri | 22 | -13 | 27 |
| 10 | Völsungur | 22 | -12 | 26 |
| 11 | Grindavík | 22 | -10 | 25 |
| 12 | Ægir | 22 | -44 | 9 |