Fotbolti.net
30.08.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson

Ndiaye á leið til Tottenham - Richarlison snýr aftur til Everton

Iliman Ndiaye fer til Tottenham

Iliman Ndiaye fer til Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Tottenham hefur komist að samkomulagi við Everton um að fá senegalska sóknarmanninn Iliman Ndiaye og þá mun brasilíski framherjinn Richarlison fara í hina áttina í skiptidíl. David Ornstein segir frá.
Ndiaye er 26 ára og hefur verið stórkostlegur með Everton síðan hann kom frá Marseille fyrir tveimur árum. Hann hefur skorað 15 deildarmörk á fyrstu tveimur tímabilum sínum hjá félaginu en lék áður með Sheffield United þar sem hann hóf atvinnumannaferilinn.

David Ornstein segir Tottenham hafa náð samkomulagi við Everton um kaup á Ndiaye. Leikmaðurinn á þó enn eftir að semja við Tottenham um kaup og kjör en ekki er búist við að það standi í vegi fyrir félagaskiptunum.

Everton fær Richarlison aftur í sínar raðir en Brasilíumaðurinn gekk einmitt til liðs við Tottenham frá Everton fyrir fjórum árum. Hann er nú 29 ára og er enn í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins eftir fjögur ár hjá Everton.

Richarlison skoraði 53 mörk í 152 leikjum fyrir Everton. Hann var einu sinni valinn leikmaður ársins hjá félaginu og hafði árið áður verið útnefndur besti ungi leikmaður þess.

Ornstein tekur þó fram að ekki sé um bein leikmannaskipti að ræða heldur séu þetta tvö aðskilin félagaskipti.

Richarlison er á leið aftur til Everton

Richarlison er á leið aftur til Everton

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.