30.12.20 - 16:03
Elvar Geir Magnússon
Theodór Elmar til Lamia í Grikklandi (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Theodór Elmar Bjarnason hefur yfirgefið Akhisaspor í Tyrklandi og samið við gríska félagið Lamia.
Lamia er í efstu deild en er á botni deildarinnar án sigurs, liðið hefur aðeins hlotið tvö stig.
Lamia er í efstu deild en er á botni deildarinnar án sigurs, liðið hefur aðeins hlotið tvö stig.
Theodór Elmar er 33 ára og hefur spilað í Tyrklandi síðan 2017. Áður lék hann meðal fyrir AGF, Randers, Lyn, Celtic, Gautaborg og uppeldisfélag sitt KR.
Hann hefur leikið 41 landsleik fyrir Ísland en síðast lék hann landsleik 2018.
Með komu Elmars eru Íslendingarnir í grísku úrvalsdeildinni þar með orðnir þrír. Markvörðurinn Ögmundur Kristinsson er hjá Olympiakos og miðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason hjá PAOK.

ΠΑΣ Λαμία: Έναρξη συνεργασίας με Elmar Bjarnason https://t.co/LxTzWyxNuy
— Καλύτερη Λαμία (@kaliterilamia) December 30, 2020