Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 31. maí 2020 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rabiot í skiptum fyrir Pogba - Coutinho til Chelsea
Powerade
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það er komið að leigubílasögunum þennan sunnudaginn. BBC tekur saman það helsta úr erlendum miðlum.



Manchester United er opið fyrir því að fá Adrien Rabiot (25) í einhvers konar skiptum ef Paul Pogba (27) fer til Juventus. (Calciomercato)

United heldur áfram að ræða við Shanghai Shenhua um að framlengja lánssamning Odion Ighalo (30) fram í janúar. (Goal)

Dimitar Berbatov, fyrrum framherji United, hefur hvatt félagið til þess að sleppa því að kaupa Philippe Coutinho (27) fyrrum miðjumann Liverpool. (Mirror)

Chelsea er nálægt því að landa Coutinho að láni frá Barcelona. (Star)

Chelsea leiðir kapphlaupið um kaup á Federico Bernadeschi (26) frá Juventus. (Gazzetta dello Sport)

David Luiz (33) mun þurfa að taka á sig launalækkun vilji hann fara til Benfica.

Lucas Torreira (24) dreymir um að fara til Boca Juniors frá Arsenal. (Fox Sports Argentína)

Alexandre Lacazette (29) hefur engan áhuga á því að fara til Inter. (Football.London)

Inter Milan hefur sett inn klásúlu í samning Mauro Icardi (27) sem PSG er að kaupa. Ef PSG selur hann til Juventus þarf franska félagið að greiða Inter 13 milljónir punda. (Goal)

Manchester United hefur enn trú á því að félagið geti klófest Jadon Sancho (20) áður en næsta tímabil hefst. (90min)

Alphonso Davies (19) hefur uppljóstrað að hann var nálægt því að fara til Swansea áður en hann fór til Bayern en hann fékk ekki atvinnuleyfi í Wales. (Sun)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner