Stjarnan heimsækir KA í tíundu umferð Bestu deildarinnar á morgun, leikurinn hefst klukkan 17:00 og fer fram á Greifavellinum.
Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, í gær og var hann fyrst spurður út í fyrirliðann sinn Guðmund Kristjánsson sem þurfti að fara snemma af velli gegn KR á fimmtudag.
Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, í gær og var hann fyrst spurður út í fyrirliðann sinn Guðmund Kristjánsson sem þurfti að fara snemma af velli gegn KR á fimmtudag.
„Hann er bara mjög stífur og við erum bara að meta stöðuna hvern einasta dag, hvort og hvernig við náum honum í gang. Landsleikjahléið verður kærkomið fyrir hann," segir Jökull.
Eins og staðan er í dag, ætlaru að reyna spila honum á sunnudaginn?
„Mér finnst hann ólíklegur, en við sjáum bara til. Ég á síður von á því, ég held hann sé kominn á þann stað að við þurfum að ná honum alveg góðum."
Stjarnan endurheimtir Kjartan Má Kjartansson úr leikbanni og Guðmundur Baldvin Nökkvason verður mögulega með.
„Guðmundur Baldvin var bara veikur, en var á æfingu með okkur áðan (föstudag). Ég þarf aðeins að meta á morgun (í dag) hvort hann komi með okkur norður."
Þjálfarinn býst við erfiðum leik gegn KA. „Eins og öllum leikjum hingað til. Það er ekki búið að vera mikið af afgerandi sigrum í deildinni og það er ekki hægt að reikna með öðru en að þetta verði einhvers konar stál í stál og við þurfum að vera upp á okkar besta til að fá eitthvað út úr þessu," segir Jökull.
KA hefur unnið tvö leiki í röð og má búast við hörkuleik fyrir norðan á morgun. Eftir leikinn á morgun tekur við landsleikjahlé.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 9 | 6 | 2 | 1 | 18 - 8 | +10 | 20 |
2. Vestri | 10 | 5 | 1 | 4 | 12 - 7 | +5 | 16 |
3. Breiðablik | 9 | 5 | 1 | 3 | 14 - 15 | -1 | 16 |
4. Valur | 9 | 4 | 3 | 2 | 20 - 12 | +8 | 15 |
5. Stjarnan | 10 | 4 | 2 | 4 | 17 - 18 | -1 | 14 |
6. ÍBV | 10 | 4 | 2 | 4 | 12 - 15 | -3 | 14 |
7. KR | 10 | 3 | 4 | 3 | 28 - 23 | +5 | 13 |
8. Fram | 9 | 4 | 0 | 5 | 15 - 15 | 0 | 12 |
9. KA | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 - 17 | -7 | 12 |
10. FH | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 - 14 | +1 | 11 |
11. Afturelding | 10 | 3 | 2 | 5 | 8 - 13 | -5 | 11 |
12. ÍA | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
Athugasemdir