Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. júlí 2021 21:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Celtic tapaði opnunarleik í fyrsta sinn í 24 ár
Ralston skoraði mark Celtic
Ralston skoraði mark Celtic
Mynd: Getty Images
Celtic heimsótti Hearts í fyrsta leik liðanna í deildinni á þessari leiktíð.

Það var dramatík í leiknum en Hearts var með 1-0 forystu í hálfleik með marki frá Gary Mackay-Steven. Anthony Ralston jafnaði metin fyrir Celtic.

Það var síðan ekki fyrr en á 89. mínútu sem John Souttar tryggði Hearts stigin þrjú. Þetta var fyrsta tap Celtic í fyrstu umferð deildarinnar í 24 ár.

Það hefur gengið afar illa hjá Celtic að undanförnu en liðið féll úr leik í Meistaradeildinni gegn Íslendingaliðinu Midtjylland á dögunum og tapaði 6-2 gegn West Ham í síðasta æfingarleiknum.
Athugasemdir
banner
banner