31.08.26 - 19:05
Ívan Guðjón Baldursson
Juventus nær samkomulagi um Woltemade

Mynd: Newcastle

Mynd: Newcastle
Ítalska stórveldið Juventus er að sækja nokkra leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á lokadögum sumargluggans.

TENGT EFNI
Juve náði samkomulagi við Tottenham
Juve er að ná í Pape Matar Sarr úr röðum Tottenham og þá er Nick Woltemade einnig á leiðinni frá Newcastle United.
Juve greiðir 4 milljónir evra til þess að fá Woltemade lánaðan en samningnum fylgir enginn kaupmöguleiki.
Woltemade er 24 ára framherji sem getur einnig spilað sem sóknartengiliður og miðjumaður. Hann var keyptur til Newcastle fyrir um 85 milljónir evra í fyrra og kom með beinum hætti að 16 mörkum í 51 leik á sínu fyrsta tímabili.
Woltemade er með fimm ár eftir af samningi sínum við Newcastle og því liggur félaginu ekki á að selja hann.