Fotbolti.net
30.10.26 - 21:39
Ívan Guðjón Baldursson

Helgi partur af mögnuðum endurkomusigri

Helgi partur af mögnuðum endurkomusigri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslendingarnir sem leika erlendis hafa langflestir lokið leikjum sínum í dag og var Helgi Fróði Ingason partur af mögnuðum endurkomusigri Helmond í næstefstu deild í Hollandi.
Helga Fróða var skipt inn af bekknum á 56. mínútu þegar Helmond var tveimur mörkum undir gegn Eindhoven FC.

Eftir innkomu Helga tókst Helmond að snúa stöðunni sér í hag og urðu lokatölur 3-2. Bæði lið eru í neðri hluta deildarinnar, Helmond á 12 stig eftir 13 umferðir eftir þennan sigur.

Tómas Johannesen var þá ekki partur af leikmannahópi Jong AZ Alkmaar sem tapaði gegn Roda. Jong AZ er með 17 stig eftir 13 umferðir.

Kristófer Jónsson er að lokum mikilvægur hlekkur í liði Reggiana og lék allan leikinn í sigri gegn Sambenedettese í C-deildinni á Ítalíu.

Reggiana er með 20 stig eftir 12 umferðir og er markmið liðsins að berjast um sæti í Serie B.

Hákon Arnar Haraldsson er þessa stundina að spila með Lille í efstu deild í Frakklandi og er hann síðasti Íslendingurinn sem keppir í dag.

Helmond 3 - 2 Eindhoven FC

Roda 2 - 1 Jong AZ

Reggiana 2 - 0 Sambenedettese
Helgi partur af mögnuðum endurkomusigri
Canon

Mynd: Reggiana

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.