Fotbolti.net
31.12.20 - 15:11
Aksentije Milisic

Cavani í þriggja leikja bann (Staðfest)

Cavani í þriggja leikja bann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Edinson Cavani hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann af enska knattspyrnusambandinu.
Cavani var dæmdur fyrir að hafa notað orð sem felur í sér kynþáttafordóma á Instagram. Hann skrifaði orðið ,Gracias negrito' til félaga síns.

Cavani eyddi strax skilaboðunum þegar honum var bent á orðið ,negrito' getur verið notað með níðrandi hætti.

Nú er ljóst að hann fer í þriggja leikja bann og þarf að greiða 100 þúsund pund.

Í yfirlýsingu frá FA segir sambandið að móðgandi og óviðeigandi. Cavani baðst afsökunar fljótlega eftir að hann senti skilaboðin.

Bannið hefst strax og því verður hann ekki með gegn Aston Villa á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.