Venni: Búið að sitja í manni hrottalega lengi
„Mér líður ógeðslega vel. Þetta er búið að sitja í manni hrottalega lengi, á annað eða þriðja ár, að sjá þetta fyrir sér. Svo að sjá þetta raungerast, ég þarf pínu bara að láta þetta synca inn og melta þetta.“ sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, sem var í dag að tryggja sætið sitt í Bestu deildina eftir sigur á Fylki á Laugardalsvelli.